Hér er sett fram tillaga sveitarstjórnar um skrá yfir vegi í náttúru Íslands innan Sveitarfélagsins Hornafjaraðar, í samræmi við 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Tillagan er kynnt samhliða auglýsingu aðalskipulagstillögu.
Undirbúningur og setning þessarar vegaskrár teljast ekki til stjórnvaldsákvarðana sem eru kæranlegar til æðra stjórnvalds. Um er að ræða málsmeðferð við setningu stjórnvaldsfyrirmæla og þá gilda hvorki kæruheimildir stjórnsýslulaga né náttúruverndarlaga. Einnig er ljóst að ákvörðun um það hvort vegur er á vegaskránni eða ekki telst ekki vera skipulagsákvörðun, enda er vegaskráin ekki hluti af aðalskipulagi.
Hér fyrir neðan eru töflur fyrir skipulagsákvæði reita í aðalskipulaginu. Með því að smella á auðkennið lengst til vinstri flyst vefsjáin á þann reit og hann er þá á miðju kortinu.
Enginn hektarafjöldi er sýndur fyrir reiti með punktafmörkun.
Smelltu á heiti flokks til að sjá reiti í þeim flokki.
Smelltu á heiti flokks til að sjá reiti í þeim flokki.



