Norðurstrandarleið er fyrsta opinbera ferðamannaleiðin á Íslandi en hún opnaði þann 8. júní 2019. Verkefnið um Norðurstrandarleið er á vegum Markaðsstofu Norðurlands. Leiðin nær frá Hvammstanga að Bakkafirði og liggur um 21 þorp og bæi. Nánari upplýsingar má finna hér.
Hluti af kostnaðinum við verkefnið hefur farið í skipulagningu innviða en það er mjög mikilvægur þáttur. Skipulagningunni er ætlað að gefa langtímasýn á þróun innviðanna og gera leiðina að áhugaverðu fordæmi á heimsvísu, auk þess að stuðla að því að gestir uppgötvi svæðið í ánægjulegri og öruggri ferð.
Upplýsinga um áhugaverða viðkomustaði var aflað á fundum með heimamönnum og í könnunarferðum. Þeir eru allir á kortinu (hakað við áhugaverða staði) og greinargóðar lýsingar koma fram ef smellt er á táknin (grænir hringir). Nánari upplýsingar er að finna í Handbók fyrir kortavefsjá Norðurstrandarleiðar. Þar er einnig útskýrt hvernig kortavefsjáin nýtist við útfærslu og uppbyggingu viðkomustaðanna.
Auðvelt er að uppfæra gagnagrunn kortavefsjárinnar og því mikilvægt að upplýsingar um allar breytingar sem verða skili sér. Við biðjum því alla sem að verkefninu koma hjá sveitarfélögunum að láta vita um allar breytingar eða leiðréttingar sem gera þarf, með því að hafa samband við Markaðsstofu Norðurlands. Við munum þá uppfæra gögnin.
Spurningum og ábendingum ætti að beina til Markaðsstofu Norðurlands / Norðurstrandarleiðar
Sími +354 462 3300